Um okkur

Ræktun æðarfugls í Miðfirði hófs um miða síðustu öld, sem tilraun ábúenda til að auka hlunnindi á jörðinni, við annars harðbýlar aðstæður. Æðarfuglinn er hánorrænn fugl og því tilvalið að rækta hann við nyrsta haf. Æðarvarpið í Miðfirði hefur vaxið ár frá ári, en mikil vinna hefur verið lögð í að stækka varpið og viðhalda því.

Jörðin Miðfjörður

Jörðin Miðfjörður er stór jörð í Skeggjastaðahreppi hinum forna, sem nú tilheyrir Langanesbyggð. Jörðin liggur milli tveggja laxveiðiáa, Miðfjarðarár og Hölknár í Bakkafirði. Búskapur hefur verið á jörðinni um árhundruð. Margir bændur bjuggu lengi vel í Miðfirði, enda jörðin stór. Smám saman fækkaði þeim. Nú er þar aðeins stundaður frístundabúskapur með sauðfé, auk æðarfuglsræktunar.

Lengsta og vatnsmesta á Bakkafjarðar rennur um jörðina og nefnist hún Miðfjarðará. Áin kemur upp á Mælifellsheiði, norðvestan undir Kistufelli, þar sem heitir Miðfjarðarárdrög. Í Miðfjarðará fellur Litla-Kverká að vestan skammt neðan við eyðibýlið Kverkártungu, u.þ.b. fjórum kílómetrum frjá sjónum. Miðfjarðará rennur mikið til í gljúfri ofan af Miðfjarðarheiði og niður að ármótum Litlu-Kverkár. Fálkafoss er í Miðfjarðará skammt ofan við ármótin. Að honum gengur fiskur en einnig fer fiskur upp í Litlu-Kverká. Um 200-300 laxar veiðast árlega í ánni. Alllangt inni á Miðfjarðarheiði er Djúpavatn, úr því fellur Litlilækur í Miðfjarðará. Í vatninu hafa fengist stórar bleikjur í net en ekki fer miklum sögum af stangveiði enda ekki verið mikið stunduð.

Vinsælt er að stunda skotveiðar í landi Miðfjarðar á veiðitímabilum. Þar er mikil rjúpnaveiði og þó nokkur gæsaveiði.

Æðarvarpið í Miðfirði er friðlýst skv. reglugerð nr. 252/1996, sbr. auglýsingu í Lögbirtingablaðinu, frá 21. mars 2019.

Friðlýsing æðarvarps gildir á tímabilinu 15. apríl til og með 14. júlí ár hvert.

Friðlýsingin felur í sér að:

  • öll skot eru bönnuð innan 2 km frá æðarvarpi, nema brýna nauðsyn beri til.

  • Ekki má leggja net í sjó nær friðlýstu æðarvarpi en 250 m frá stórstraumsfjörumáli, nema með leyfi varpeiganda.

  • Öll óviðkomandi umferð og röskun er bönnuð, nema með leyfi varpeiganda.

  • Allur óþarfa hávaði af völdum manna og véla er bannaður, nema með leyfi varpeiganda.

Staðsetning

Miðfjörður

Langanesbyggð

is_ISÍslenska
Scroll to Top